Júní
Eyþór Sigurðsson Hofi Öræfum
Eyþór Sigurðsson Hofi Öræfum
Mynd: Vigdís Gunnarsdóttir

01.06.2009 Júní

Brautskráð frá Hólum

 

Þann 22. maí fór fram brautskráning nemenda frá Háskólanum á Hólum og meðal þeirra sem að þessu sinni útskrifuðust þaðan voru þrír nemendur frá Hornafirði. Eyþór Sigurðsson, frá Hofi í Öræfum útskrifaðist með diplómagráðu af fiskeldis- og fiskalíffræðideild og hlaut hann viðurkenningu og bókargjöf fyrir besta námsárangur í fiskeldisfræði. Ómar Ingi Ómarsson og unnusta hans Hannah Charge voru á hrossabraut og luku námi sem tamningamenn. Ómar og Hannah ætla að mæta aftur í Hólaskóla eftir næstu áramót og ná sér þar í kennararéttindi í hestamennskunni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica