Júní
Melaflugvöllur
Melaflugvöllur7
Haukur og Vignir takast í hendur og Ágúst á milli þeirra.
Mynd 7 af 7
1 2 3 4 5 6 7

08.06.2009 Júní

Lending á Suðurfjöru-flugvelli

Undanfarnar vikur hafa Fjöruferðir ásamt Ágústi Þorbjörnssyni og Gísla Páli Björnssyni á Höfn unnið hörðum höndum að því að gera gömlu flugbrautina á Suðurfjörum færa til lendinga og s.l. miðvikudag rann sú stóra stund upp að Hörður Guðmundsson flugstjóri og eigandi Flugfélagsins Ernis lenti þar flugvél sinni. Hörður lauk lofsorði á flugbrautina og hvað hún væri vel merkt og farþegar hans þeir Vignir Þorbjörnsson og Haukur Sveinbjörnsson eigandi Fjöruferða sögðu að lendingin hefði verið ennþá mýkri en á malbikaða flugvellinum.

Einnig hafa starfsmenn Fjöruferða mokað burt sandi og möl sem fyllt hafði gamla flugskýlið og koma þar fyrir borðum og bekkjum og þó vanti þak, einn vegg og gler í glugga er þar ágætt skjól til að grilla eða snæða nestið sitt. Tvær samliggjandi brautir voru eftir Suðurfjörum og er það ,,nýja brautin´´ sem kölluð var sú sem er nær fjörukambinum sem nú er komin í lag, einnig var þarna ein norður-suður þverbraut um 860m löng. Í september árið 1965  var nýr flugvöllur í landi Árnaness í Nesjum tekinn í notkun og var þá flugvellinum á Melatanga lokað eftir rúmlega 20 ára notkun.

Endurbútum á Melatanga er ekki lokið þó flugbrautin sé komin í gagnið. Vonir standa til að hægt verði að fá Douglasflugvél  Landhelgisgæslunnar í heimsókn í sumar og að hún lendi á þessari nýuppgerðu flugbraut en Douglasvélar DC3 voru lengi í áætlunarfluginu til Hornafjarðar.



Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica