Júní
Sandkerti úr Ríki Vatnajökuls.
Guðrún Ingólfsdóttir listakona hefur hannað og hafið framleiðslu á kertum hjúpuðum svörtum sandi. Sandkertið er búið til úr efni úr Ríki Vatnajökuls. Sandurinn er úr fjörunni, undan jöklinum eða nærri eldstöðinni. Liturinn á kertinu minnir á umhverfið sem það er sprottið úr.
Hún handmálar mynd af kertunum sínum á gjafaöskjuna sem þau eru í. Sandkertið er kærkominn minjagripur úr Ríki Vatnajökuls.
Þau eru til sölu á Kaffihorninu, Handraðanum og Hótel Höfn.




Skrifa athugasemd