Júní
Firmakeppni Hornfirðings
Firmakeppni Hornfirðings
Heiðdís, Bjarney, Heiða og Gunnar að gera sig klár fyrir sýningu mynd 2: Allir hestarnir voru með rauða slaufu í taglinu.

16.06.2009 Júní

Hestamannafélagið Hornfirðingur

 

Hestamannafélagið Hornfiðingur heldur sitt árlega félagsmót núna um helgina. Hornfirðingur er með elstu hestamannafélögum á landinu stofnað 1936. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á félagssvæðinu  félagið á góðan hringvöll, 800m kappreiðabraut, kennslugerði,og lokað hringgerði. Félagið stendur fyrir vetrarleikum yfir veturinn þar sem að félagsmenn leiða hesta sína saman. Einnig hefur félagið verið með hestanámskeið fyrir óvön börn og unglinga,  en ekki er komin dagsetning á námskeiðið þetta sumarið.

Hornfirðingur heldur  árlegt félagsmót sitt  20. til 21. júní næstkomandi á félagsvæði Hornfirðings við Stekkhól.

Þar mæta félagar í sínu besta pússi með gæðinga sína og taka þá til kostanna.

Veitingar verða í Stekkhól og eftir keppni og kjötsúpuát  á laugardag verður farið í hina rómuðu Skógeyjarútreið.
Keppni hefst  kl. 12:00 á laugardaginn með forkeppni og  síðan hefjast úrslit kl12:00 á sunnudag.
Skráning er hafin, sjá nánar áheimasíðu Hornfirðings.

Frítt er inn og allir hjartanlega velkomnir!

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica