Júní
Björgunaraðgerðir
Björgunaraðgerðir

26.06.2009 Júní

Hálendisgæsla björgunarsveitanna

Fréttatilkynning frá Landsbjörgu um verkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar um björgunarsveitir á hálendinu.

Núna fjórða árið í röð flykkjast björgunarsveitamenn og konur upp á hálendið til að standa vaktina, aðstoða og leiðbeina þeim ferðamönnum sem þar ferðast um.

Á hverju ári verða mörg slys á hálendi Íslands sem m.a. má rekja til vanþekkingar og vanbúnaðar þeirra sem um hálendið fara. Í sumar verður Slysavarnafélagið Landsbjörg með slysavarnaverkefni fjórða sumarið í röð á hálendinu en fjórar björgunarsveitir félagsins halda upp á hálendið á morgun föstudaginn 26. Júní og verða sveitir þar næstu sex vikurnar eða til 9. ágúst ferðamönnum til aðstoðar og leiðbeininga. Björgunarsveitirnar verða með aðsetur í Öskju, Nýjadal, Landmannalaugum og á Hveravöllum og keyra úr frá þeim stöðum en gámar verða fluttir á þá staði sem björgunarsveitirnar hafa aðsetur í. Björgunarsveitirnar  Strákar Siglufirði, Skagfirðingasveit og Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík ríða á vaðið og taka gæsluna fyrstu viku verkefnisins en a.m.k. fyrstu vikuna er Sprengisandsleið lokuð þar sem enn er mikil bleyta í veginum þar.

 

Markmið verkefnisins er þríþætt:

-fækka slysum

-veita ferðamönnum aðstoð og upplýsingar

-vera með viðbragðseiningar á hálendinu

 

Undanfarin ár hefur margsinnis verið leitað að ferðamönnum á hálendinu og mörg ár hafa ferðamenn látist þar. Með því að staðsetja björgunarsveitir á hálendinu verður hægt að bregðast fljótt við ef aðstoðar er þörf. 

Síðastliðin þrjú sumur var mikið um hvers kyns aðstoð við ökumenn, þeim voru veittar leiðbeiningar, fyrsta hjálp og mörgum var bent á að þeir væru á bílum sem væru ekki búnir fyrir hálendisferðir. Einnig var nokkuð um að ferðamenn lentu í vandræðum með bíla sína eins og við óbrúaðar ár.

Neyðarlínan mun verða upplýst um stöðu og staðsetningu björgunarsveitanna sem taka þátt í verkefninu. Það mun að hluta til verða gert með ferilvöktun í gegnum TETRA fjarskiptakerfið.

Björgunarsveitir víðs vegar af landinu munu taka þátt í verkefninu með því að leggja til mannskap og búnað í eina viku. Rétt er að taka fram að allt björgunarsveitarfólk er sjálfboðaliðar.

Þeir sem þurfa að ná á björgunarsveitirnar geta gert það í gegnum Neyðarlínuna 112. 

Aðalstyrktaraðilar verkefnisins eru N1, Vegagerðin, Sjóvá , 66° Norður og Umhverfisstofnun  en jafnframt koma Gámaþjónustan  og Rás 2 að verkefninu.  Í sumar verður útvarpsþátturinn Föðurlandið á Rás 2 á föstudögum með fræðslu fyrir ferðamenn og fréttir af fjöllum. 

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica