Júlí
Glófaxamenn og Hlómsveitin Undur á þaki Jöklasýningarinnar
Glófaxamenn og Hlómsveitin Undur á þaki Jöklasýningarinnar
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

02.07.2009 Júlí

Tónleikar sem komu skemmtilega á óvart

pistill frá Marenu Ósk Sveinbjörnsdóttur

Síðastliðinn laugardag  þegar ég var úti í garði að moldvarpast fékk ég ókeypis tónleika heim í garð til mín. Ég fór að grennslast fyrir um það hvaðan þessi skemmtilega og kratfmikla tónlist kæmi og viti menn - uppi á þaki Vöruhússins voru mættir Glófaxamenn og hljómsveitin Undur. Þeir spiluðu nokkur vel valin lög og létu síðan vita af útgáfutónleikum sem átti að halda í Sindrabæ kl. 21 þá um kvöldið. Þetta var flott framtak og ekki margir sem feta í fótspor Bítlanna og spila uppi á þaki.

Eftir þessa skemmtilegu útitónleika ákváðum við Gunna Steina að skella okkur í Sindrabæ um kvöldið. Tónleikarnir voru í einu orði sagt frábærir , hljómsveitin var  skipuð átta frábærum tónlistarmönnum sem spiluðu og sungu dúndrandi rokkmúsik.  Bjössi Jóns kynnti lögin og sagði skemmtilegar sögur sem tengdust þeim. Þeir Axel og Hallur voru aldrei langt undan en Bjössi tjáði okkur að Öddi væri að vinna.
Það kom mér skemmtilega á óvart hvað þetta var mikið stuð og mikið hlegið. Þeir Glófaxamenn hafa einstakt lag á að gera grín að sjálfum sér og ekki skemmdi það fyrir að þarna voru þrír ættliðir tónlistarfólks sem höfðu samið mörg lög eða texta þeirra Glófaxamanna, þau Hrönn Jónsdóttir, Kristjón Elvarsson og Elvar Bragi  Kristjónson, allt frábærir listamenn.

Ég vona að ég eigi eftir að heyra meira í  þessari skemmtilegu hljómsveit og tónlist Glófaxamanna, ekki væri nú verra að komast á ball með þeim, því gleðin og stuðið smitar alla í kringum þá. Ég mæli með diskinum þeirra.

Takk fyrir góða skemmtun
Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica