Júlí
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra ásamt landeigendum Hoffells og Miðfells og fulltrúum Vatnajökulsþjóðgarðs
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra ásamt landeigendum Hoffells og Miðfells og fulltrúum Vatnajökulsþjóðgarðs
Mynd 1 af 2
1 2

03.07.2009 Júlí

Vatnajökulsþjóðgarður stækkar og byggist upp

Hoffellsfjöll verða hluti af Vatnajökulsþjóðgarði

Á vef umhverfisráðuneytisins kemur fram að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og eigendur Hoffells og Miðfells í sveitarfélaginu Hornafirði undirrituðu þann 29. júní sl. samning um friðlýsingu fjalllendis á jörðunum við Hoffellsjökul. Svæðið eru um 50 ferkílómetrar að stærð og verður hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.

Á vefnum kemur fram að landslag á svæðinu er stórbrotið og einkennist af lítt grónum fjöllum og grónum dölum. Birkiskógur með sérstæðu gróðurfari og mörgum sjaldgæfum fléttum og háplöntutegundum vaxa á svæðinu.

Þá er sagt að markmiðið með friðun svæðisins er að vernda búsvæði fyrir margar sjaldgæfar gróðurtegundir sem hafa takmarkaða útbreiðslu.  Með verndun þessara tegunda og búsvæða þeirra er stuðlað að því að tryggja viðhald líffræðilegrar fjölbreytni, sbr. 2010 markmið samningsins um líffræðilega fjölbreytni og evrópsku áætlunina um plöntuvernd 2008-2014. Jafnframt er svæðið verndað til útivistar.

Jafnframt er unnið að heildarskipulagningu á svæðinu í samráði við svæðisráð, landeigendur, sveitarfélagið og aðra hagsmunaaðila. Skipulagið felur meðal annars í sér uppbyggingu gönguleiða, uppsetningu merkja og skilta, lagfæringar á akstursleiðum og uppbyggingu Hoffellsstofu en þann 29. júní s.l. var einnig undirritaður samningur á milli Jöklaveraldar ehf., sem er fyrirtæki í eigu Þrúðmars og Ingibjargar í Hoffelli, og Hoffellsstofu um byggingu og rekstur Hoffellsstofu. Jöklaveröld ehf. stendur að byggingu húsnæðis sem verður þjónustuhús fyrir heitu laugarnar, upplýsingamiðstöð ásamt ýmsu fleiru.

Uppbygging á Heinabergssvæði

Unnið er í samstarfi landeigenda, sveitarfélagsins og Vatnajökulsþjóðgarðs að uppbyggingu Heinabergssvæðisins með því að bæta aðgengi ferðamanna að Heinabergsdal og Heinabergslóni.  Nýverið hefur gamla þjóðleiðin verið löguð og byggð upp að nýju en gamla þjóðleiðin liggur rétt austan við Kolgrímu. Stefnt er að því að gera leiðina greiðfæra flestum bílum allt að Heinabergslóni.

Megin áningastaður svæðisins verður við Heinabergslón. Þar verður gert bílastæði, reist þurrsalerni og köld gestastofa með fræðslu um svæðið.  Þá verða sett upp upplýsingaskilti víðar á svæðinu meðal annars við aðkomuleiðina og Hánípu.

Gott gönguleiðakort er til af Mýrum þar sem merktar eru inn helstu gönguleiðir á þessu svæði en stefnt er að því að merkja þær sérstaklega í framtíðinni.

Stefnt er að áframhaldandi uppbyggingu á næstu árum og bættu aðgegni að þessu stórbrotna umhverfi.

Mikið að gera í Skaftafelli

Stöðugur straumur ferðamanna er í Skaftafell þessa dagana.  Í þjónustumiðstöð garðsins koma um 2500 manns á dag og þeir tíu starfsmenn sem starfa á vegum þjóðgarðsins búast í heildina við hátt á annað hundrað þúsund gestum í sumar.  Miklar endurbætur hafa verið gerðar á þjónustumiðstöðinni og nú er unnið að deiliskipulagi fyrir Skaftafell þar sem lagðar verða línur um uppbyggingu tjaldstæðis og annarrar þjónustu fyrir gesti.  Tvö fyrirtæki sem bjóða upp á jökla- og fjallaferðir eru með starfsemi í Skaftafelli í sumar en landverðir þjóðgarðsins standa einnig fyrir gönguferðum innan garðsins.  Á hverjum fimmtudegi í júlí er fyrirlestur klukkan átta á kvöldin um margvíslegar rannsóknir og náttúrfar í þjóðgarðinum.  Næsti fyrirlestur er um landnám birkis á Skeiðarársandi.  Nýverið fengust þrjár m.kr. úr Styrkvegasjóði Vegagerðarinnar til vegabóta innan garðsins.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica