Júlí
Alþjóðlegt friðarhlaup
Alþjóðlegt friðarhlaup
Hópurinn í alþjóðlega friðarhlaupinu kom til Hornafjarðar í gærkvöldi.
Mynd 1 af 2
1 2

04.07.2009 Júlí

Alþjóðlega friðarhlaupið kom til Hafnar

Hópurinn í alþjóðlega friðarhlaupinu kom til Hornafjarðar í gærkvöldi. Í hópnum eru 25-35 manns  sem ætla að hlaupa ,,hringinn´´, þeir fóru frá Reykjavík 1. júlí og ætla að ljúka hring-hlaupinu og koma aftur til Reykjavíkur 15. júlí. Víðir Sigurðsson talsmaður hópsins segir hlaupið til að minna fólk á vináttu og samkennd og eru þátttakendur frá mörgum löndum t.d. Ástralíu, Tékklandi  og Slovakiu. Þetta er boðhlaup og þar sem hver hlaupari hleypur a.m.k. 3-5 km. í einu og þeir öflugust hlaupa 20 km. Áfanginn í gær var frá Kirkjubæjarklaustri til Hafnar og í dag verður haldið til Egilsstaða. Friðarhlaupararnir tóku þátt í fjölmennri humarhátíðarskrúðgöngu í gærkvöldi í blíðskaparveðri og mikilli hátíðarstemningu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica