Skeiðará horfin í Gígjukvísl
Um síðustu helgi urðu miklar breytingar á rennsli Skeiðará og rennur nú allt vestara útfall árinnar í Gígjukvísl sem er vestar á Skeiðarársandi. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni skoðaði aðstæður þar í gær og sagði að þetta kæmi svo sem ekki alveg á óvart. Við höfum verið hrædd um að þetta myndi gerast þar sem jökullinn hefur legið á öldum þarna og mikill hallamunur er vestur í lónið sem Gígja kemur úr alveg um 16 metrar frá útfallinu á Skeiðará þannig að hún hefur dálítið fall þarna vestur. Áin rennur ennþá á um 100 m. kafla undir jöklinum þar sem hann liggur að þessum malaröldum og er greinilega að grafa sig þarna vestur og það eru mikil boðaföll meðfram jöklinum og öldunum og talsvert rót.
Fari Skeiðará öll í Gígju eru miklar líkur á að gera þurfi ráðstafanir til að halda Gígju í skefjum einkum ef hlaup koma í hana en eins og er telur Reynir mannvirki ekki í hættu. Hann segir brúna yfir Gígju mjög öfluga og trausta og þar sem séð var fram á að þetta gæti gerst var brúin hönnuð þannig að hægt væri að lengja hana.
Jökullinn hefur ekki hopað mikið undanfarið en hann hefur þynnst mikið og þá fer vatnið að komast undir hann með þessum afleiðingum.
Árið 1991 gekk jökullinn fram og hækkaði mjög mikið en síðan 1992 hefur hann hopað og jaðarinn lækkað mikið.Í vetur var gerð íssjámæling við jökulinn og skoðað hvort þar væri klöpp sem varnað gæti rennsli vestur en svo var ekki þar var enga slíka fyrirstöðu að finna og vatnsflaumurinn á þar greiða leið yfir í Gígju.
Breytingarnar sem vegfarendur verða varir við er þurr farvegur undir vesturhluta Skeiðarárbrúar og mikið meira vatn í Gígju. Morsá rennur undir austurhluta Skeiðarárbrúar.
Reynir Gunnarsson fór í dag með flugvél yfir Skeiðarársvæðið og segir að austurkvísl árinnar sé nánast horfin úr sínum farvegi undir brúnni, þar sé aðeins örlítil spræna og um leið hefur vatnsmagn Gígju aukist. Reynir segir þetta vera stórkostlegar breytingar frá því sem áður var við Skeiðará og breytingin ótrúleg þegar hugsað er aftur til þess tíma þegar vatnsflaumurinn fyllti farveginn undir þessari löngu brú.





Skrifa athugasemd