Ágúst
Leið 1_2_3
Leið 1_2_3
Leið 1_2_3

11.08.2009 Ágúst

Vill setja skilyrði vegna nýs vegar

 

Skipulagsstofnun hefur tekið afstöðu til mismunandi leiða nýs vegar yfir Hornafjarðarfljót en vegurinn verður hluti hringvegarins og styttir hann um 11-12 km. Um þrjár meginleiðir er að velja og telur Skipulagsstofnun að þær myndu allar hafa varanleg og neikvæð umhverfisáhrif, ein þeirra þó minnst.

Skipulagsstofnun segir að svonefnd leið 1 muni hafa talsvert neikvæð áhrif á fugla og áhrifin á landslag, ásýnd og jarðmyndanir verði varanleg og óafturkræf.  Stofnunin telur hins vegar að aðrar leiðir, sem taldar eru koma til greina, muni hafa verulega neikvæð og óafturkræf áhrif á landslag, ásýnd, jarðmyndanir og gróður 

Stofnunin leggur til að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir veginum samkvæmt leið 1 með því skilyrði, að Vegagerðin myndi formlegan samráðshóp fagaðila, m.a. með aðild Landgræðslu ríkisins og Umhverfisstofnunar, um endurheimt votlendis vegna framkvæmdarinnar. Samráðshópurinn hafi það hlutverk að fylgjast með endurheimt votlendis á framkvæmdasvæðinu og vinni að því markmiði að votlendi endurheimtist til jafns við það sem framkvæmdin hafi raskað. Sjá niðurstöðu Skipulagsstofnunar (pdf)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica