Ágúst
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir með lúru í gjafapakkningu
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir með lúru í gjafapakkningu
Mynd 1 af 2
1 2

12.08.2009 Ágúst

Hollur er heimafenginn baggi

 

Verslun í Heimamarkaðsbúðinni sem opnuð var í Pakkhúsinu á Höfn í sumar hefur gengið vel segir  Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir, okkur vantar bara meira af  matvöru frá framleiðendum hér í sveitarfélaginu og meiri fjölbreytni. Makríllinn, bæði reyktur og í paté  hefur alveg slegið í gegn  og svo er fiskurinn alltaf vinsæll. Lúrur,sem segja má að sé sér hornfirskt fyrirbrigði, er hægt að fá í gjafaumbúðum og segir Guðrún að þær séu vinsælar og mikið keypt af þeim einnig fæst þar rjómaísinn gómsæti frá  Brunnhól-Árbæ.

Lífrænt ræktað grænmeti frá Hólabrekku er væntanlegt  í búðina á næstunni og  vonandi fleiri tegundir þeirra fjölmörgu afurða sem framleidd eru hér í sveitarfélaginu og málshátturinn ,,Hollur er heimafenginn baggi´´ á vel við um þá matvöru

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica