Ágúst
Eldur í rafmagnsstaur
Eldur í rafmagnsstaur
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

14.08.2009 Ágúst

Rafmagnsleysi á austurlandi

 

Rétt fyrir klukkan 16:00 í gær varð truflun á 132 kV háspennulínu sem liggur frá Hólum í Teigarhorn. Þessi truflun olli aðallega straumleysi hjá notendum á Egilsstöðum og í nærsveitum og einnig við Berufjörð. Einnig fór út álag hjá stóriðju á Grundartanga.

Elding fór í mastur á línunni þar sem hún liggur yfir Öxi með þeim afleiðingum að það kviknaði í. Skömmu síðar barst Landsneti tilkynning um að mastur í línunni á Öxi stæði í ljósum logum. Þegar starfsmenn Landsnets komu að mastrinu logaði enn í því, en stuttu seinna kom slökkviliðið á Djúpavogi og slökkti í mastrinu. Viðgerð fer fram í dag, en rafmagn kom fljótlega aftur á hjá notendum eftir að búið var að aftengja línuna og tengja notendur eftir öðrum leiðum.

Hjá Rarik á Höfn fengust þær upplýsingar að þetta hafi ekki valdið teljandi truflun hér nema að útsendingar Digital Íslands féllu niður í eina klukkustund.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica