Október
Loftmynd af Höfn
Loftmynd af Höfn
Höfn

03.10.2009 Október

Helmingslækkun á fargjöldum með áætlunarbílum milli Hafnar og Reykjavíkur

Í dag  settu Bílar og fólk ehf./TREX  og samgönguráðuneytið af stað átak sem miðar að því að lækka til muna verð á ferðum með áætlunarbílum fyrirtækisins, en fyrirtækið sér um áætlunarferðir milli Hafnar og Reykjavíkur.

Samgönguráðherra, Kristján Möller, seldi fyrsta farmiðann í morgun, í viðhöfn sem haldin var af tilefninu.

Átakið felur í sér að Bílar og fólk munu lækka öll fargjöld um helming fram til áramóta. Þeir farþegar sem nú þegar njóta afsláttarkjara, svo sem eins og öryrkjar, ellilífeyrisþegar, börn og skólafólk, munu frá 3. október einnig greiða eingöngu helming af því sem þeir hafa greitt fram til þessa. Öll fargjöld lækka um helming.

Vart þarf að taka fram að um mikla kjarabót er að ræða fyrir almenning og er það von þeirra sem að því standa að þetta muni hjálpa almenningi að takast á við það ástand sem skapast hefur á Íslandi undanfarið.

Markmið átaksins eru hinsvegar fleiri. Átakið mun vonandi varpa ljósi á hvaða hlutverki verðlagning gegnir í nýtingu almenningssamgangna á Íslandi. Von Bíla og fólks og samgönguráðuneytisins er einnig að þetta átak stuðli að góðri kynningu á þeim valkosti sem áætlunarferðir langferðabifreiða eru á við aðra samgöngumáta hvað varðar verð, gæði og umhverfisáhrif.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica