Október
Á siglingu til hafnar með Hornið í bakgrunn

12.10.2009 Október

Ályktanir frá Útvegsmannafélagi Hornafjarðar

Samþykktar á aðalfundi þ. 12. október 2009

 

Makríll

Útvegsmannafélag Hornafjarðar gagnrýnir harðlega þá ákvörðun stjórnvalda að viðhafa ólympískar veiðar á makríl fyrri part sumars. Með því var miklum verðmætum kastað á glæ, bæði í makríl og Norsk-Íslensku síldinni, enda allt kapp lagt á að veiða sem mest á sem skemmstum tíma.

Útvegsmannafélag Hornafjarðar leggur áherslu á að litið sé á makrílveiðarnar sem hluta af veiðum á Norsk-Íslensku síldinni, veiðarnar verða ekki stundaðar í sitthvoru lagi.

Þá gagnrýnir Útvegsmannafélagið stjórnvöld harðlega fyrir að heimila ekki mun meiri veiðar en rúm 100 þúsund tonn. Það hefði styrkt samningsstöðu okkar gagnvart öðrum strandveiðiríkjum verulega.

Útvegsmannafélag Hornafjarðar hefur einnig áhyggjur af áhrifum makrílsins á aðra nytjastofna við Íslandsstrendur, bæði vegna samkeppni um fæðu í íslenskri lögsögu og afráns á nytjastofna.

Grundvallaratriði er að rannsóknir á makrílnum og áhrifum hans verði auknar.

 

Loðna

Útvegsmannafélag Hornafjarðar skorar á stjórnvöld að ákveða þegar í stað upphafskvóta í loðnu fyrir komandi vertíð. Með því að koma flotanum af stað snemma má auka líkur á að loðna finnist tímanlega í veiðanlegu magni. Þetta er mikilvægt vegna skipulagningar veiða, vinnslu og ekki síður markaðsstarfs þar sem hart er sótt að okkur.

Þá telur útvegsmannafélagið rétt að endurskoða aflareglu í loðnu til framtíðar þannig að ávallt sé upphafskvóti. Útvegsmannafélagið skorar á stjórnvöld að koma þegar í stað að vinnu með útvegsmönnum við endurskoðun aflareglunnar í þá átt sem að framan er lýst.

 

Þorskur

Útvegsmannafélag Hornafjarðar telur að allt of langt hafi verið gengið með niðurskurð í þorski undanfarin ár. Í ljósi mikillar fiskgengdar telur útvegsmannafélagið rétt að auka þegar í stað aflamark.

 

Fyrning aflaheimilda

Útvegsmannafélag Hornafjarðar mótmælir harðlega öllum hugmyndum um fyrningu aflaheimilda. Ljóst er að slík aðgerð myndi setja sjávarútveginn á hvolf á nokkrum árum.

Útvegsmannafélag Hornafjarðar hvetur stjórnvöld til að falla þegar í stað frá öllum hugmyndum um fyrningu til að eyða þeirri óvissu sem greinin býr við í dag. Það er alveg ljóst að á meðan hótun þessi hangir yfir greininni verður engin framþróun, heldur stöðnun.

Þess í stað hvetur félagið stjórnvöld til að ákveða aflamark til amk þriggja ára í senn þannig að fyrirtæki geti skipulagt veiðar, vinnslu og markaðsstarf til lengri tíma.

 

Strandveiðar

Útvegsmannafélag Hornafjarðar mótmælir því harðlega að svokallaðar strandveiðar hafi tekist vel í sumar. Þvert á móti voru þær eins misheppnaðar og efni stóðu til. Strandveiðarnar stuðluðu ekki að nýliðun, ekki að bættri aflameðferð, ekki að bættu öryggi sjómanna og stuðluðu alls ekki að sátt um kerfið.

 

Hvalveiðar

Útvegsmannafélag Hornafjarðar fagnar því að hvalveiðar séu nú stundaðar á ný og hvetur stjórnvöld til að leyfa áframhaldandi hvalveiðar.

 

Hafrannsóknastofnunin

Útvegsmannafélag Hornafjarðar skorar á stjórnvöld að falla þegar frá öllum hugmyndum um að færa Hafrannsóknastofnunina undir Umhverfisráðuneytið.

Slík breyting myndi hafa slæm áhrif á þá samvinnu sem verið hefur á milli aðila í greininni og stofnunarinnar, enda vinnur Umhverfisráðuneytið út frá friðun, en ekki sjálfbærri nýtingu – eins og það ætti að gera.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica