Október
Hálendisgæsla
Hálendisgæsla
Mynd 1 af 3
1 2 3

23.10.2009 Október

Fjöldi aðstoðarbeiðna þrefaldast á milli ára

Fréttatilkynning frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu

 

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem voru á vaktinni á hálendinu í sumar hafa aldrei fengið eins mörg verkefni en fjöldi beiðna um aðstoð þrefaldaðist frá fyrra ári.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu um Hálendisvakt björgunarsveitanna sem gefin hefur verið út.

Ferðalög um hálendi Íslands aukast ár frá ári og eru þar á ferð bæði íslenskt og erlent ferðafólk.  Árlega haf orðið alvarleg slys á þessu svæði, jafnvel banaslys, sem og fjöldi óhappa. Slysavarnafélagið Landsbjörg leggur sitt af mörkum til að auka öryggi ferðafólks með viðverðu björgunarsveita á svæðinu yfir aðal ferðamannatímann. Samkvæmt tölum Ferðamálastofu hefur erlendum ferðamönnum til landsins fjölgað töluvert og í ágústmánuði nam fjölgunin um 12.000 manns. Bílaleigur urðu einnig varar við fjölgun ferðamanna en aldrei hafa eins margir bílar verið leigðir yfir sumartímann. Því má gera ráð fyrir að fjölgun ferðafólks hafi einnig áhrif á hve margir leita til hálendisvaktarinnar með leiðbeiningar og aðstoðarbeiðnir.

Skráðar aðstoðarbeiðnir sumarið 2009 voru 930 talsins og er umtalsverð fjölgun milli ára þar sem aðstoðarbeiðnir sumarið 2008 voru 367.

Helstu verkefni sumarsins voru að aðstoða fólk við ár og vöð. Einnig var nokkuð um að grennslast væri eftir ferðamönnum sem skiluðu sér ekki á tilteknum tíma í skála, aðstoða ferðamenn með bilaða bíla og sprungin dekk. Mikið var um að björgunarsveitarfólk væri að segja ferðafólki til um færð og ferðaleiðir. Án efa hefur það mikið að segja að okkar fólk er merkt, ferðast um svæðið og hittir mikið af ferðafólki sem er að leita leiðbeininga um ferðaval og færð á vegum. Fyrir utan fræðslu og leiðbeiningar veittu sjálfboðaliðar björgunarsveitanna slösuðum og veikum fyrstu hjálp, og sinntu útköllum sem bárust frá Neyðarlínunni. Í sumar urðu þrjú bílslys á hálendinu þar sem kallað var eftir aðstoð björgunarsveita. Skjót og rétt viðbrögð skipta miklu máli og þar sem vegalengdir eru miklar fyrir sjúkrabíla og lögreglu.

Alls tóku 23 björgunarsveitir þátt í verkefninu sumarið 2009. Flestar sveitirnar voru eina viku á fjöllum og tóku um 144 sjálfboðaliðar þeirra þátt. Margar vinnustundir liggja að baki verkefni sem þessu, undirbúningur er mikill hjá skrifstofu félagsins og þátttakendur sóttu námskeið áður en haldið var upp á hálendið. Ef reiknaðar eru vinnustundir meiðað við þann fjölda sem tók þátt liggja um 18.700 klst að baki. Í þeim tölum er þó aðeins tekið vinnuframlag þeirra sem voru á hálendinu.

Hér má sjá skýrslu um hálendisstarf björgunarsveitanna 2009 (pdf)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica