Töluverðar breytingar á Heinabergsjökli
Jarðfræðinemendur úr FAS í árlegum jöklamælingum
Síðast liðinn mánudag var farið að Heinabergsjökli til að athuga hvort það hafi orðið breytingar á jöklinum frá því í fyrra. Að venju voru það nemendur sem eru að læra jarðfræði sem tóku þátt í verkefninu. Hópurinn að þessu sinni var óvenju stór eða tæplega þrjátíu manns. Veðrið var einstaklega gott, sólskin og logn.
Heinabergsjökull gengur fram í lón og því þarf að framkvæma ýmsar mælingar og nota svo stærðfræðina tll að athuga hvort vegalengdir frá mælipunktum að jökli hafi breyst. Mælilínurnar sem miðað er út frá eru tvær.
Í dag var svo farið yfir upplýsingarnar sem nemendur komu með heim úr ferðinni og breytingar reiknaðar út. Það er skemmst frá því að segja að jökulinn hefur hopað allmikið norðanmegin og nemur hopið þar um 80 metrum. Í syðri mælilínunni hefur jökullinn hins vegar dálítið gengið fram.





Skrifa athugasemd