Nóvember
Blóðbergs Panna Cotta
Blóðbergs Panna Cotta
Mynd 1 af 2
1 2

02.11.2009 Nóvember

Jólagjöfin í ár

Matreiðslubókin "Réttir úr ríki Vatnajökuls"

 

Halldór Halldórsson matreiðslumaður á Hótel Höfn er nú við það að ljúka við matreiðslubókina Réttir úr ríki Vatnajökuls.

Halldór nýtur stuðnings frá Daníel Imsland sem sér um umbrot og grafíska vinnslu. Auk þess hafa Guðmundur H. Gunnarsson hjá Matís og Rósa Björk Halldórsdóttir hjá Ríki Vatnajökuls komið að hugmyndavinnu bókarinnar. Hráefni sem finnst í Hornafirði mun vera í aðalhlutverki í öllum réttunum og þar á meðal flest það sem selt hefur verið í heimamarkaðsbúðinni.

Myndir frá Hornfirskum áhugaljósmyndurum af Hornfirskri náttúru í bland við matarmyndir prýða síður bókarinnar.

Það má því með sanni segja að bókin sé algjörlega Hornfirsk.

Uppskriftirnar í bókinni eru hannaðar með því tilliti að byrjendur jafnt sem lengra komnir geti stuðst við þær í eldhúsinu og hefur Halldór safnað myndum og uppskriftum frá árínu 2003 þegar að hugmyndin að bókinni kviknaði.

"Það er búið að vera gríðarlegur áhugi fyrir verkefninu" segir Halldór og segir að fólk sé nú þegar byrjað að panta bækur til að gefa í jólagjafir til ættingja, innan sem utan Hornafjarðar.

Búist er við að bókin komi frá prentsmið í byrjun desember.

Áhugasamir geta haft samband á netfangið halhal@simnet.is eða í síma 692-5624.

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica