Nóvember
Neyðarkall 2009
Neyðarkall 2009

06.11.2009 Nóvember

Neyðarkall Björgunarsveitanna

 

Helgina 6. til 8. nóvember munu björgunarsveitir og slysavarnadeildir Slysavarnafélagsins Landsbjargar fara af stað með fjáröflun um allt land sem kallast “Neyðarkall frá björgunarsveitum”, og hefst átakið formlega með því að forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson, ásamt eiginkonu sinni, frú Dorrit Moussaieff, selja neyðarkallinn í Smáralindinni í dag. Hér á Höfn verða félagar úr Björgunarfélagi Hornafjarðar í Miðbæ og selja Neyðarkallinn frá hádegi í dag.

Hagnaður af sölunni mun renna til björgunarsveita og Slysavarnafélagsins Landsbjargar og verður hann notaður til að efla og styrkja björgunarsveitir landsins.

Í gegnum tíðina hefur almenningur haft mikinn skilning á störfum björgunarsveita enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tækni og þekkingu.

En þrátt fyrir að meðlimir björgunarsveitanna séu allir sem einn sjálfboðaliðar er rekstur þeirra dýr. Þjálfa þarf björgunarsveitarfólk, tæki og tól verða að vera tiltæk og í góðu lagi, húsnæði þarf undir búnað og olíu á tækin. Fjármagns er aflað með ýmsum hætti; sölu flugelda, dósasöfnun, gæsluverkefnum, jólatréssölu og ýmsu öðru, og nú með átakinu Neyðarkall frá björgunarsveitum.

Við vonum að landsmenn taki meðlimum björgunarsveitanna opnum örmum og styðji þannig við bakið á fórnfúsu starfi þeirra þúsunda björgunarsveitarmanna sem eru til taks allan ársins hring þegar samborgarar þeirra þurfa á aðstoð að halda.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica