Nóvember
Gervigrasvallargrunnur
Gervigrasvallargrunnur
Mikið vatn hefur safnast fyrri í grunninum.

11.11.2009 Nóvember

Stefnt er á að völlurinn verði tilbúinn til notkunar í vor

Á lóð vegagerðarinnar á Höfn gefur nú að líta heljarmikinn grunn fullan af vatni svo líkja má við sundlaug. Þarna er verið að byrja á grunni undir gervigrasvöll og er verktaki við þá vinnu Rósaberg ehf. Völlurinn verður merktur 68 x 48 m. sem er lögleg stærð til keppni í sjö manna fótbolta. Stefnt er á að völlurinn verði fullbúinn og tilbúinn til notkunar í vor.

Nýi völlurinn bætir stórlega aðstöðu fyrir knattspyrnufólk hér á svæðinu og öll aðstaða til æfinga  verður orðin mjög góð. Í framtíðinni er svo áætlað að byggja yfir völlinn en fótboltahús hefur verið á áætlun sl.1-2 ár en eins og fleiri stórframkvæmdir hafa þær tafist vegna efnahagsástandsins.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica