Nóvember
Menntamála- og iðnaðarráðherrar ásamt talsmönnum og skipuleggjendum alþjóðlegrar athafnaviku.
Menntamála- og iðnaðarráðherrar ásamt talsmönnum og skipuleggjendum alþjóðlegrar athafnaviku.

11.11.2009 Nóvember

Snilldarlausnir Marels

Alþjóðlega athafnavikan

Á föstudaginn var hófst keppnin Snilldarlausnir Marels í FAS. Keppnin sem er hluti af Alþjóðlegu athafnavikunni er ætluð framhaldsskólum landsins og fá nemendur ákveðin hlut í hendurnar, nota ímyndunarafli og skapa eitthvað úr hlutnum.  Hluturinn í ár er HERÐATRÉ!  Virði hlutarins getur verið félagslegt, fjárhagslegt, tilfinningalegt, skemmtilegt, umhverfisvænt og í raun allt sem nemendum dettur í hug.
Allir framhaldsskólanemendur geta tekið þátt í keppninni. Þrír eða færri eiga að vera í hverjum hóp og verða þeir að vera úr sama skóla. Keppendur auka virði hlutarins og búa til Youtube myndband til að kynna virði eða virkni hans.  Myndbandið má vera að hámarki þrjár mínútur að lengd. Keppendur senda slóð myndbandsins inn á netfangið snilldarlausnir@athafnavika.is fyrir miðnætti sunnudaginn 15. nóvember.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum. Fyrir bestu hugmyndina eru veittar 100.000 krónur, fyrir frumlegustu hugmyndina og flottasta myndbandið eru 25.000 króna verðlaun. Nánari upplýsingar um keppnina er að finna á slóðinni snilldarlausnir.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica