Alþjóðleg athafnavika á Íslandi
„ Lausn vandamála felst í athafnasemi “
Dagana 16.-22.nóvember verður alþjóðleg athafnavika haldin í 103 löndum. Íslendingar taka nú í fyrsta sinn þátt í þessari viku og við Hornfirðingar ætlum ekki að láta þetta fram hjá okkur fara. Nýsköpunarmiðstöð Íslands er stuðningsaðili verkefnisins en Innovit sér um skipulag vikunnar á Íslandi. Björk Pálsdóttir heldur utan um verkefnið á Höfn. Stofnaður var undirbúningshópur með fulltrúum fyrirtækja og stofnana á Höfn með það að markmiði að hvetja íbúa og fyrirtæki til athafna.
Markmiðið er að fá flesta til að taka þátt í þessari viku, hafa gaman af henni og njóta þeirra viðburða sem í boði verða. Viðburðir þurfa ekki að vera neitt flóknir og allir geta tekið þátt ! Sem dæmi geta fyrirtæki verið með opið hús eða kynningu á starfsemi sinni eða gert eitthvað sérstakt í tilefni vikunnar. Félagasamtök geta verið með, kynningar, opna fundi, opið hús eða opnar æfingar svo eitthvað sé nefnt.
Í miðrými Nýheima verður ýmislegt í boði og margir möguleikar á athafnasemi. Þar verður m.a. prjónaður kærleikstrefill úr afgangsgarni, málað verður málverk þar sem bæjarbúum gefst kostur á því að mála hluta af, þar geta menn komið með hljóðfæri ef einhverjir vilja spila eða syngja, ræðukassi ef einhver vill koma fram og tala, lesa ljóð eða hvað sem mönnum hugnast, þarna verður hægt að spila myndbönd eða vera með slæðusýningar o.fl. skemmtilegt.
Athafnateygjan fer af stað á mánudeginum Hjalti bæjarstjóri fær hana í hendurnar og sér til þess að koma henni af stað. En hún gengur manna á milli og þegar menn hafa athafnast og skráð viðburð skal hún afhent næsta manni með loforði um athafnasemi. Snilldarlausnir hugmyndakeppni framhaldskólana stendur yfir frá 8 – 15 nóvember. Keppnin gengur út á það að skapa verðmæti úr herðatré , gera stutt skýringarmyndband um það og senda í keppnina. Dómnefnd mun fara yfir tillögurnar og verða úrslit og verðlaunaafhending sunnudaginn 22.nóvember.Nánari upplýsingar um þessa keppni má sjá á http://www.snilldarlausnir.is/ .
Mikilvægt er að skrá viðburði en það má gera hjá: athafnavika.is, Björk hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands bjorkp@nmi.is, og Nínu hjá Þekkingarneti Austurlands nina@tna.is . Þar má einnig fá frekari upplýsingar um athafnavikuna. Í miðrými Nýheima er búið að setja upp stórt viðburðadagatal þar sem skráðir verða viðburðir vikunnar hér á Höfn. Hornfirðingar hafa tekið vel við sér og nú eru 33 viðburðir skráðir en hægt verður að skrá viðburði þar til vikunni lýkur.
Einnig er hægt að nálgast viðburðadagatalið inn á rikivatnajokuls.is/vidburdir.
Með athafnakveðjum
Fyrir hönd undirbúningshóps um athafnaviku á Höfn
Björk og Nína.





Skrifa athugasemd