Nóvember
Kærleikstrefillinn
Kærleikstrefillinn

16.11.2009 Nóvember

Gleðilega athafnaviku !

Athafnateygjan - Hornfirðingar með forystuna kl 11:30

 

Athafnateygjur ganga nú manna á milli um bæinn en Hjalti Vignisson bæjarstjóri og Björk Pálsdóttir hjá Nýsköpunarsmiðstöð eru skráð fyrir teygjum á Höfn.  Markmið með þessari teygju er að ýta undir athafnasemi og um leið kynna athafnavikuna. Svo verður gaman að sjá hversu miklu við Hornfirðingar komum í verk á einni viku.  Æskilegt er að teygjan fari nokkuð hratt manna á milli til að við náum góðri skráningu.  Nánari upplýsingar á athafnateygjan.is/

Þegar þú færð teygjuna þá þarftu að:

1.       Ákveða hverju þú ætlar að koma í verk

2.       Framkvæma

3.       Skrá framkvæmdina á síðunni athafnateygjan.is – skráning

4.       Afhenda öðrum einstaklingi teygjuna

5.       Sagan endurtekur sig

Guðný Svavarsdóttir er búin að fitja upp kærleikstrefilinn en þar fá bæjarbúar tækifæri á því að vinna að sameiginlegu verkefni sem minnir á samstöðu og kærleik nú er bara að drífa sig á bókasafnið og prjóna. Ef þú hefur aldrei prjónað þá er Guðný fús til að sýna þér handtökin.  Klukkan 13 -16 í dag verður málað málverk undir leiðsögn Guðrúnar Ingólfsdóttur þar fá bæjarbúar tækifæri til að skapa listaverk sem verður hengt upp í Nýheimum.  Alls eru tíu viðburðir skráðir í dag, hægt er að skoða þá á viðburðadagatali á samfélagsvefnum rikivatnajokuls.is, á dagatali í miðrými Nýheima eða á athafnavika.is.   

Með athafnakveðju

Fyrir hönd undirbúningshóps

Björk og Nína

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica