Fréttatilkynning frá Náttúrustofu Austurlands
Keyrt var á hreindýrstarf á Háreksstaðavegi nýlega. Það minnir okkur á að framundan er sá tími þegar árekstrar við hreindýr eru algengastir.
Keyrt var á hreindýrstarf á Háreksstaðavegi nú um helgina. Það minnir okkur á að framundan er sá tími þegar árekstrar við hreindýr eru algengastir.
Hættan á árekstrum við hreindýr hefur aukist mikið á síðustu árum eins og sjá má á fyrstu mynd. Á annari mynd sést að hættulegustu staðirnir samkvæmt tilkynntum árekstrum hafa verið Kárahnjúkavegur og þjóðvegur 1 um Lón og Nes á Suðausturlandi.

1. mynd. Fjöldi hreindýra sem urðu fyrir bílum frá 1999 til dagsins í dag.

2. mynd. Fjöldi ákeyrðra hreindýra eftir stöðum
Skammdegið er hættulegasti tími ársins. Eins og sést á 3. mynd verða flest dýr fyrir bílum í nóvember til janúar.

3. mynd. Árekstrar við hreindýr eftir mánuðum frá 1999 til dagsins í dag.
Náttúrustofa Austurlands hvetur bílstjóra til að fara gætilega einkum á Kárahnjúkavegi, Háreksstaðavegi, Fagradal, Hamars- og Álftafirði og í Lóni og Nesjum.
Flestir árekstrar við hreindýr verða í ljósaskiptunum þar sem hálka er á vegum.
Nóvember-janúar er hættulegasti tími ársins fyrir hreindýr gagnvart ökutækjum.
Vegagerðin hefur sett upp viðvörunarskilti á hættulegustu stöðunum og eru ökumenn hvattir til að sýna sérstaka aðgát þar.





Skrifa athugasemd