Tafir á bólusetningu vegna inflúensu A(H1N1)
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa áætlanir um bólusetningu vegna inflúensunnar A(H1N1) raskast vegna tafa á afhendingu bóluefnis.
Ekkert bóluefni berst til HSSA í þessari viku og fyrir séð að þeir sem áttu tíma í bólusetningu þann 2. og 3. desember n.k. frestast til fimmtudagsins 17. desember .
Tekið af influensa .is
Sóttvarnalæknir hefur nú tilkynnt að
- bóluefni verður næst dreift til heilsugæslustöðva 15. desember og síðan 6. janúar 2010.
- heilsugæslustöðvar taka ekki við fleiri tímapöntunum í bólusetningu fyrr en 15. desember, fyrir það bóluefni sem þá verður dreift.
Upphaflega var gert ráð fyrir að alls 200.000 skammtar bóluefnis bærust til landsins til áramóta en nú eru horfur á að skammtarnir verði um 170.000. Ástæður tafa við afhendingu bóluefnis eru minni framleiðslugeta framleiðandans en áætlað var, vandamál sem tengjast innpökkun bóluefnis og fleira. Vandinn snertir alla sem bíða eftir bóluefninu, ekki aðeins Íslendinga.
Nú þegar hafa verið bólusettir um 70.000 manns hérlendis og vert er að halda því til haga að þetta er hærra hlutfall þjóðarinnar en þekkist annars staðar, að því best er vitað.
Faraldurinn í rénun
Mjög hefur dregið úr inflúensufaraldrinum hérlendis en landsmenn eru samt eindregið hvattir til þess að láta bólusetja sig þegar því verður við komið.





Skrifa athugasemd