Desember
Gjöf frá Slysavarnardeildinni
Gjöf frá Slysavarnardeildinni
Margrét Ingólfsdóttir tekur á móti gjöfinni fyrir Leikskólann frá þeim Slysavarnarkonum Þorbjörgu Helgadóttur, Ingu Kristínu Sveinbjörnsdóttur og Guðrúnu Ósk Óskarsdóttir

04.12.2009 Desember

Fjör í Framtíðinni

 

Í Slysavardeiliddin Framtíðinni eru skráðar vel yfir  100 félagskonur og gaman að segja frá því að alltaf eru að bætast nýjar konur í félagið. Síðast núna á haustfundinum gengu 10 nýjar konur í  félagið og verða þær teknar formlega inn í félagið á aðalfundi í mars.

Við eigum okkar föstu fjáraflanir, það er Kaffisalan á Sumardaginn fyrsta sem er alltaf jafn flott, við höfum verið að taka að okkur að þrífa íbúðir fyrir Sveitarfélagið, svo er nýlokið Línu happdrættinu með glæsilegum vinningum og þökkum við kærlega fyrir frábærar móttökur, bæði þeim sem keyptu sér línu og þeim sem gáfu okkur vinninga.

Svo núna tókum við upp á því aftur að baka laufabrauð eftir 4-5 ára hlé,og áttum við góða  og notalega stund saman við það. Ætlum við að selja laufabrauðið á markaðsdrginum 5. des. í Nýheimum og vonum auðvitað að við fáum góðar unditektir eins og alltaf.

Á þessu ári gáfum við nýju sundlauginni okkar tvö skiptiborð og barnastóla, svo reynum við alltaf að styðja við björgunarsveitina okkar og margt annað.

En auðvitað gerum við líka margt annað en að fjárafla, við fórum í mjög skemmtilega haustferð í október og þökkum við þeim kærlega fyrir sem tóku á móti okkur. Svo héldum við okkar árlegu jólasamverustund í Slysavarnarhúsinu um daginn sem er alltaf jafn skemmtileg.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica