Kiwanisklúbburinn Ós og Nettó styrkja Félagasamtök Hornafjarðar
Félagasamtökum Hornafjarðar hefur borist 270 þúsund kr. gjafabréf á matarúttekt í Nettó. Gefendurnir eru Kiwanisklúbburinn Ós sem gaf 210 þús. og Nettó bætti þar við 60 þúsund.
Forseti Kiwanisklúbbsins Óss Ásgeir Ásgeirsson ásamt gjaldkeranum Miralem Haseta afhenda svo Jóni Kristjáni félagsmálafulltrúa gjafabréfin með von um að þessu verði skipt milli nokkurra heimila og verði kærkominn glaðningur fyrir jólin því í okkar litla bæjarfélagi eru vissulega til heimili sem eru hjálpar þurfi.
Ein af mörgum fjáröflunarleiðum Kiwanisklúbbsins er sala á jólatrjám og er þessi gjöf ágóði hennar. Einnig selja þeir úrvals lakkrískonfekt sem framleitt er hjá sælgætisgerðinni Freyju hér á Höfn. Jólatrén sem seld eru hér eru úr skógræktinni í Haukafelli nema Norðmannsþinurinn sem fluttur er inn frá Danmörku.
Kiwanisfélagarnir í Ósi óska öllum A-Skaftfellingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.





Skrifa athugasemd