Desember
Jóel
Jóel
Hlynur Pálmason kvikmyndagerðarmaður
Mynd 2 af 2
1 2

16.12.2009 Desember

Stuttmyndin Jóel verður frumsýnd á virtri franskri stuttmyndahátíð

 

Stuttmyndin Jóel eftir Hlyn Pálmason hefur verið valin á árlega stuttmyndahátíð í Clermont í Frakklandi. Hátíðin verður frá 29. janúar til 6. febrúar og er af þremur bestu eða virtu í Evrópu.  „Mér er boðið á hana en er ekki alveg viss um hvort ég komist vegna skólans, ég þarf að athuga það betur. En ég hef heyrt að þetta festival er eitt af þrem bestu í Evrópu og er ég þess vegna mjög ánægður með að myndin verður sýnd þar“  segir Hlynur en hann stundar nám við Danska kvikmyndaskólann.  Stuttmyndin Jóel hefur ekki verið sýnd nein staðar ennþá, þetta verður semsagt frumsýningin, forsýningin var á Höfn í fyrra. Myndin var tekin hér á Hornafirði sumarið 2008  og er Sævar Knútur Hannesson í aðalhlutverki. Myndin fjallar um unglingsstrákinn Jóel sem passar illa inn í hóp jafnaldra og reynir því í örvæntingu sinni að komast inn í krossaraklíku. Á bjartri sumarnóttu fær Jóel tækifæri á að gerast meðlimur krossaraklíkunnar án þess að vita hverskonar afleiðingar það gæti haft í för með sér.
Gerð myndarinnar var styrkt af Sveitarfélaginu Hornafirði og Menningarráði Austurlands.


Hér er heimasíða stuttmyndahátíðarinnar frönsku: clermont-filmfest.com

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica