Jólakveðjur á Skjávarpi aldrei fleiri
Það má segja að jólakveðjur á SkjáVarpi séu fyrir löngu orðnar hluti af jólunum hjá mörgum í Sveitarfélaginu Hornafirði á sama hátt og lestur jólakveðja í útvarpinu hefur verið á landsvísu en í ár hafa kveðjurnar aldrei verið fleiri. Í upphafi byrjuðu þær sem kveðjur frá rekstraraðilum en síðustu ár þá hefur það færst í aukana að einstaklingar og fjölskyldur nýti sér þennan möguleika til að koma kveðju sinni á framfæri. Kveðjurnar birtast á dreifikerfi SkjáVarps undir ljúfri jólatónlist og hér á vefnum í beinni útsendingu á Þorláksmessukvöld, aðfangadag og jóladag. Kveðjunum er svo breytt í nýárskveðjur og sendar út á gamlársdag og nýársdag. Kveðjurnar eru birtar með fallegri mynd úr sveitarfélaginu í bakgrunn og þökkum við öllum þeim ljósmyndurum kærlega fyrir sem hafa látið okkur í té myndir, en auk ljósmyndara vefsins þá eiga m.a. Óðinn Eymundsson, Hlynur Pálmason, Einar Björn Einarsson og Stefán Ólafsson myndir sem birst hafa. Er myndefnið óþrjótandi enda er náttúrufegurðin hér hvergi meiri.




Skrifa athugasemd