Janúar
Sögutengd ferðaþjónusta
Sögutengd ferðaþjónusta
Mynd sem kynnir SSF. Helga Ágústsdóttir staðarhaldari á Eiríksstöðum í Haukadal í forgrunni.
Mynd 2 af 3
1 2 3

12.01.2010 Janúar

Málþing Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu í Þórbergssetri

 

Félagsfundur Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu verður haldinn í Þórbergssetri dagana 15. og 16. janúar næstkomandi. Samtök um sögutengda ferðaþjónustu eru landssamtök og félagar eru um 60 frá öllum landshlutum. Helsta markmið samtakanna er að vera samvinnu- og samráðsvettvangur þeirra er stunda sögutengda ferðaþjónustu á Íslandi. Auk þess er markmiðið að auka samvinnu í kynningarmálum, gæðamálum og stuðla að aukinni fagmennsku. Samtökin leggja áherslu á arfleifð íslenskra miðaldabókmennta, fyrstu aldir Íslandsbyggðar og miðaldamenningu þ.e. tímabilið frá landnámi og fram á 16.öld. Um 30 aðilar samtakanna alls staðar af landinu ætla að sækja þennan félagsfund í Þórbergssetri.

 

Það kemur í hlut okkar Skaftfellinga að vera gestgjafar á árlegum félagsfundi samtakanna að þessu sinni. Er það í framhaldi af því verkefni sem  hefur verið unnið að í klasasamstarfi á síðustu tveimur árum um sögutengda ferðaþjónustu og opnun Söguslóðar á Suðausturlandi síðastliðið vor. Á föstudeginum kl 16:00 verður opið málþing í Þórbergssetri þar sem allir eru velkomnir sem hafa áhuga á að kynna sér starfsemi þessara samtaka  og hvað er verið að gera í ferðaþjónustu á Íslandi sem tengist sögu og menningu miðalda. Á málþinginu eru áhugaverð erindi og m.a. kynning á matarmenningu í ríki Vatnajökuls, kynning á Söguslóð á Suðausturlandi, kynning á fornleifauppgreftri í Hólminum og við Fagurhólsmýri í Öræfum og síðan erindi um möguleika á að markaðssetja og þróa sérstakar söguferðir á Íslandi. Einnig verður fjallað um bókaútgáfu í tengslum við sögutengda ferðaþjónustu.

 

Það er von okkar sem störfum í þessum samtökum að sem flestir ferðaþjónustuaðilar og áhugamenn um sögu og menningu láti sjá sig í Þórbergssetri á þessu málþingi næstkomandi föstudag. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir!

Hér má nálgast dagskránna á pdf formi

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica