Janúar
Brunaútkall að Svalbarði
Brunaútkall að Svalbarði
Slökkvilið Hornafjarðar að störfum

15.01.2010 Janúar

Brunaútkall að Svalbarði í gærkvöldi

Slökkvilið Hornafjarðar var kallað út kl.21 í gærkvöldi að Svalbarði 1 á Höfn þar sem kviknað hafði í innréttingu í baðherbergi og var íbúðin full af reyk þegar komið var á staðinn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en mikið tjón varð í íbúðinni vegna reyks. Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni. Enginn var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp þar sem eigandinn hafði brugðið sér frá .

Þetta er fyrsta útkall slökkviliðsins á þessu ári en á síðasta ári voru útköll 6 en ekkert stórvægilegt að sögn Steinþórs Hafsteinssonar slökkviliðsstjóra.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica