Orkubóndinn á Höfn
Áhugamenn um virkjun orku, hvort sem um er að ræða virkjun bæjarlækjar, hitareits, vindgnauðs, sólar eða jafnvel fjóshaugs, geta sótt námskeiðið Orkubóndann sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir á Höfn 26. og 27. janúar. Orkubóndinn er fyrir áhugafólk um virkjun orku, einstaklinga, fyrirtæki, landeigendur, bændur og alla sem vilja beisla orkuna heima fyrir, en lögð er áhersla á að gera efnið skemmtilegt og aðgengilegt öllum og er námskeiðsgjaldið einungis 3000 krónur. Námskeiðið hefur verið haldið á fjórum stöðum á landinu nú þegar og bera góðar viðtökur merki um mikinn áhuga á virkjun orku og sjálfbærni meðal almennings, en að námskeiðinu loknu á Egilsstöðum 13. janúar hafa 410 þátttakendur sótt námskeiðið.
Orkubóndinn er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Orkustofnunar, Iðnaðarráðuneytisins, Mannvits, Verkís, Ísor og heimamanna víða um land, en námskeiðið verður haldið á níu stöðum í vetur. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar, heimamenn, og sérfræðingar frá Nýsköpunarmiðstöð, Orkustofnun, Ísor og verkfræðistofunum. Í framhaldi af Orkubóndanum eiga þátttakendur kost á að fá aðstoð við að hrinda virkjunarhugmyndum í framkvæmd.
Herferð Orkubóndans um landið lýkur 19. maí þegar haldin verður ráðstefna í Reykjavík þar sem þátttakendur af námskeiðunum koma saman og mun Iðnaðarráðherra veita hvatningarverðlaunin Orkubóndinn.
Námskeiðið verður haldið í Nýheimum á Höfn í Hornafirði 26. og 27. janúar kl. 10:00 – 16:30. Skráning á námskeiðið er á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, nmi.is/.
Nánari upplýsingar veita:
Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands s. 5229000 / 896 5692.
Brynja Sigurðardóttir verkefnisstjóri, brynjasig@nmi.is s. 5229000 / 691 2404.
Ari Þorsteinsson verkefnisstjóri á Höfn, arith@nmi.is s. 5229000 / 8918080.
Björk Pálsdóttir verkefnastjóri á Höfn, bjorkp@nmi.is s. 5229000 / 470 8089





Skrifa athugasemd