70 manns mættu á Þrettándabingó í Suðursveit
Hið árlega Þrettándabingó í Suðursveit var haldið í Hrollaugsstöðum föstudagskvöldið 8. janúar síðastliðinn. Fram að árinu 2009 sá ungmennafélagið Vísir um bingóið, en í haust var ákveðið að kvenfélagið Ósk mundi taka bingóið að sér. Á þessu kvöldi gera menn í Suðursveit og á Mýrum sér dagamun, spila bingó, borða girnilegar kökur og spjalla saman. Aðsókn að bingóinu var mjög góð og mættu rúmlega 70 manns, sem var mjög ánægjulegt. Slysavarnarfélagið lánaði bingóspjöldin eins og áður. Vinningar voru veglegir og nutu kvenfélagskonur stuðnings veitingastaða og fyrirtækja í sveitarfélaginu. Þeir sem gáfu vinninga voru; Apótekið, Blóm og bróderí, Hótel Höfn, Hótel Smyrlabjörg, Húsasmiðjan, Húsgagnaval, Jaspis og Jöklaís.
Kvenfélagið þakkar þeim kærlega fyrir veittan stuðning og mun ágóðinn af bingóinu renna til þeirra sem eiga um sárt að binda á þessu ári.





Skrifa athugasemd