Beint í leiðarkerfi vefsins.
Byrjendamót í Kraftlyftingum var á Akureyri 20.febrúar og lögðu fjórir ungir og efnilegir menn leið sína þangað fyrir hönd Kraftlyftingafélag Sindra.
Sævar Knútur Hannesson keppti í -60 kg, Kristján Helgi Hjartason -100 kg, Jón Snorri Þorsteinsson -110 kg og Ragnar Ingi Jóhannesson -125 kg.
Í hádeginu í dag spilaði tónlistarhópur opinnar viku í kaffiteríunni í Nýheimum. Hópurinn flutti nokkur lög sem hafa verið æfð undanfarna daga.
Lesa meira
Nú er unnið að ráðningu í vinnuskólann fyrir árið 2010. Alls bárust 49 umsóknir í 14 lausar stöður, en ráðnir eru 6 flokkstjórar og 6 í sláttuhóp.
Lesa meira
Í dag hélt opna vikan áfram hjá FAS og hófst á ýmis konar hópastarfi. Allmargir nemendur höfðu valið útivist og því var ákveðið að skipta útivistarhópnum í smærri einingar.
Lesa meira
Nú fer af stað í fyrsta skipti Vetrarhátíð í Ríki Vatnajökuls. Þema hátíðarinnar er ferðalag og hefst með Ísklifurhátíð ÍSALP í Öræfunum nk. föstudag og stendur í tvo daga. Viðburðir verða í boði frá 26. febrúar og fram yfir páska. Hefð er komin á suma viðburðina eins og Norðurljósablús.
Lesa meira
Það er búið að vera mikið fjör í skólanum í dag, öskudag. Nemendur og starfsfólk mættu í grímubúningu og mátti sjá allskonar undarlegar persónur og furðuverur á ferð. Dagurinn hófst á æfingum fyrir samkomuna í íþróttahúsinu en þar tóku krakkarnir lagið auk þess sem þeir tóku þátt í hæfileikakeppni.
Lesa meira
Samfélag sem byggir á sterkum sjávarútvegi sem með sjálfbærum veiðum skapar þjóðarbúinu miklar gjaldeyristekjur, þiggur ekki ríkisstyrki og skapar örugga atvinnu fyrir fjölda fólks þykir víðast hvar um heiminn öfundsvert.
Lesa meira
Samfylkingin á Hornafirði heldur félagsfund fimmtudaginn 18. febrúar kl. 20:00 í húsnæði Afls við Víkurbraut. Umræðuefni fundarins verður undirbúningur sveitarstjórnakosninga í vor.
Lesa meiraÞorrablót HSSA var haldið 11 febrúar síðastliðinn, fyrir þá sem þiggja þjónustu heimahjúkrunar, heimaþjónustu og dagvistar. Um 70 manns mættu á blótið sem var haldið í Ekrusalnum.
Lesa meira
Þann 11. febrúar sl. voru haldin þorrablót á vegum HSSA bæði á hjúkrunardeild og í dagvist. Á hjúkrunardeildinni hófst undirbúningurinn með hárlagningu og rúllum hjá konunum eins og vera ber. Í hádeginu var boðið uppá dýrindis þorramat sem starfsfólk mötuneytisins reiddi fram af mikilli snilld.Tók heimilisfólk þá vel til matar síns.
Lesa meira
Þá er komið að annarri Áhugaljósmyndarasýningu í Pakkhúsinu. Fyrirhugað er að halda aðra áhugaljósmyndarasýningu í Pakkhúsinu í mars.
Lesa meira
Á dögunum var boðað til svokallaðs prjónakvölds hjá starfsfólki grunnskólans. Þar mættu rúmlega tuttugu starfsmenn með það sem þeir höfðu á prjónunum en það var æði misjafnt. Sumir prjónuðu, einhverjir saumuðu út, heklunál var á lofti og svo var orkerað.
Lesa meira
11.2 dagurinn var í gær. Þá voru allir viðbragðsaðilar um allt land með opið hús hjá sér. Þema dagsins var aðkoma almennings að vettvangi slysa, veikinda og áfalla.
Lesa meira
Meðal verkefna sem hlutu styrk var verkefni Sveitarfélagsins Hornafjarðar "Sjávarfallavirkjun í Hornafirði" sem fjallar um mögulega nýtingu sjávarfallastrauma til raforkuframleiðslu í Hornafirði.
Lesa meira
Megin breytingar eru fólgnar gegnsæi í gjaldtöku sem leiða á af sér aukna endurvinnslu úrgangs, fyrirtæki greiða þar að leiðandi fyrir magn en eru ekki sett í fyrirfram ákveðna flokka eins og áður var.
Lesa meira
Sigurbjörg Sandra Olgeirsdóttir eða Sandra Olgeirs eins og flestir þekkja hana er fædd og uppalin á Hornafirði eða í Nesjahverfi nánar tiltekið.
Lesa meiraTveir þátttakendur fóru frá Kraftlyftingafélagi Sindra, þeir Ingi Stefán og Sævar Rafn Guðmundssynir. Sævar keppti í 70 kg flokki karla og lenti í 2 sæti og Ingi Stefán keppti í 100 kg flokki karla og gerði Íslandsmet í sínum flokki.
Lesa meiraDagur leikskólans er þann 6.febrúar en þann dag var félag leikskólakennara stofnað fyrir 60 árum síðan.
Lesa meira
Vatnajökulsþjóðgarður vekur athygli á námskeiði í landvörslu sem er haldið á vegum Umhverfisstofnunar.
Lesa meiraUm helgina fór fram MÍ 15-22 ára í Reykjavík. USÚ sendi 5 keppendur á þetta mót.
Fyrsta vika febrúarmánaðar ár hvert er helguð tannvernd. Áhersla er lögð á mikilvægi góðrar tannheilsu og í ár beinum við sérstakri athygli að yngstu börnunum.
Lesa meira
Dagana 26. og 27. janúar stóð Nýsköpunarmiðstöð Íslands fyrir námskeiðinu Orkubóndanum á Höfn. Námskeiðið fékk mjög góðar viðtökur og voru skráðir þátttakendur 80 manns sem er um 4% íbúa og samsvarar því að um 4.500 Reykvíkingar myndu mæta á eitt námskeið.
Lesa meira