Hreindýr á Höfn
Undanfarið hafa nokkrir hreindýrstarfar haldið sig í nágrenni Hafnar svo sem á Ægissíðu, Hrossabithaga og komið alveg að Fiskhólnum. Þetta svæði er eitt vinsælasta útivistarsvæði bæjarbúa ekki síst þeirra sem fara í göngutúra með hunda sína en það virðist ekki hrekja dýrin burtu.
Sigurður Eymundsson í Framnesi sem hefur undanfarin fjörutíu ár fylgst vel með hreindýrastofninum hér telur að um 300 hreindýr séu núna á svæðinu í Suðursveit , Mýrum, Nesjum og Lóni. Eftir því sem best er vitað er hvergi jafnmikið af hreindýrum í byggð og á alfaraleiðum eins og er á þessum svæðum og auðvelt fyrir þá sem vilja komast í nálægð við þessi tignarlegu dýr og fylgjast með þeim. Einnig er oft nokkuð af hreindýrum í Álftafirði.
Sigurður er afar óhress með hvað stór hreindýraveiðikvóti er útgefinn fyrir þessi svæði í Hornafirði, hann segir alltof mörg veiðileifi vera gefin út og afleiðing þess er að hreindýrum hefur stórlega fækkað á þessum svæðum undanfarin ár og með þessu áframhaldi verði dýrunum útrýmt hér. Hreindýrin skipta miklu fyrir byggðalagið hér, þetta skapar vissa atvinnu og tekjur fyrir landeigendur og ekki spilla stórar hreindýrahjarðir sem auðvelt væri að nálgast fyrir vetrarferðaþjónustunni sem eykst ár frá ári.





Skrifa athugasemd