Loðnan er komin
Jóna Eðvalds, skip Skinneyjar Þinganess landaði í morgun 700t af loðnu og Ásgrímur Halldórsson er að landa 450 t. Loðnan er stór og góð, um 39 stykki í kg sem þykir mjög gott. Loðnan er öll fryst til manneldis fyrir austantjaldsmarkað og fyrir helgina eru Japanir væntanlega í heimsókn. Skipin fengu loðnuna út af Suðursveit og loðnutorfur eru á löngu svæði fyrir austurlandi og suður að Ingólfshöfða.
Netavertíð Hornafjarðabáta byrjar vel, góður afli og góður fiskur. Hvanney, Skinney og Sigurður Ólafsson eru á netaveiðum og verið er að gera Þóri kláran á netin.
Sex línubáta eru á veiðum frá Höfn og er afli alveg þokkalegur en heldur minni hjá þeim bátum sem eru með handfæri.




Skrifa athugasemd