Febrúar
Geitarækt Dynjanda
Geitarækt Dynjanda
Hanný Heiler
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

08.02.2010 Febrúar

Geitur eru góð og skemmtileg dýr

Geitarækt er víða að verða vinsæl búgrein en ekki er auðvelt að ná um þessa kostagripi því fáir geitabændur eru tilbúnir til að selja og einnig ná sauðfjárveikivarnir yfir geitastofninn svo ekki má flytja þær milli landshluta nema tilskilin leyfi fáist. Fréttamaður vefsins heimsótti aðal geitabóndann í Hornafirði en það er Hanný Heiler bóndi í Dynjanda til að forvitnast um þessa nýju en þó gömlu búgrein og hvernig þessi búskapur gengi. Hanný sagði það ganga alveg ljómandi vel og það sé afskaplega gaman að vera með geitur.

Geitur eru góð og skemmtileg dýr, ég átti orðið 21 geit en seldi nýlega sjö til þriggja aðila í Suðursveit og Mýrum sem höfðu mikinn áhuga á að fá geitur. Ef vel gengur gætu fæðst 15 kiðlingar hér í vor og ég stefni á að fjölga geitastofninum og hætta með sauðféð, á bara þrjár rollur eftir.

Hanný er komin með gott hús fyrir geiturnar og hún þarf ekki annað en kalla á þær þá koma geiturnar hlaupandi heim í hús og það leynir sér ekki að þetta eru mikil gæludýr og einstaklega hænd að eiganda sínum.

Margir sem hafa áhuga á að fá geitamjólk hafa haft samband við Hanný en hún á ekki von á að slíkt verði í boði eins er. Mikil eftirspurn er eftir geitakjöti sem þykir sérlega ljúffengt og stefnir Hanný á meiri kjötsölu eftir því sem bústofninn stækkar.

Geitabúskapurinn er þó ekki aðalstarf Hannýar a.m.k. ekki ennþá, hún hefur í mörg ár tekið hesta í tamningu, verið með reiðnámskeið og fleira og fleira sem tengist hestamennskunni og segir að mikið sé að gera í vetur við hestatamningar. Hanný hefur útbúið eitt af útihúsunum sem inniæfingasvæði til að þjálfa hestana, fyrsta reiðhöllin í Nesjum sem kemur að góðum notum þegar illa viðrar til tamninga utan dyra og stórbætir alla aðstöðu fyrir starfsemina.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica