Febrúar
Dagþjónustan
Dagþjónustan
Tryggvi og Ásgeir
Mynd 2 af 4
1 2 3 4

10.02.2010 Febrúar

Nú eru að verða tilbúnir 700 öskupokar í öllum regnbogans litum.

Árið 2001 byrjaði dagþjónusta faltlaðra að bjóða fyrirtækjum á Höfn  upp á að kaupa öskupoka eða pakka sælgæti/poppi/harðfisk eða dóti í poka fyrir Öskudaginn.

Þetta tilboð mæltist mjög vel fyrir og fyrstu tvö árin vorum við að sauma á milli 600-700 öskupoka og pakka sælgæti fyrir mörg fyrirtæki. Eftirspurnin eftir öskupokunum minnkaði töluvert og síðustu ár höfum við ekki verið að selja nema 50-100 stk.  En nú í ár pantaði AFL starfsgreinafélag 700 öskupoka til að gefa börnum á sínu starfssvæði, sem er allt Austurland . Það hefur verið mikið fjör í dagþjónustunni hjá okkur við að sauma, þræða, beygja títuprjóna o.fl. og eru nú að verða tilbúnir 700 öskupokar í öllum regnbogans litum.

Við erum líka búin að fá nokkrar pantanir um að pakka harðfisk og sælgæti í poka fyrir öskudaginn og keyrum þessu öllu tilbúnu út til fyrirtækjanna. Það minnkaði ásóknin í þessa þjónustu í uppsveiflunni og  en núna í þessu árferði er fólk meðvitaðra um að nota þjónustu í heimabyggð og styrkja gott málefni.

Allan ágóði af þessari vinnu notum við til að gera okkur dagamun. Markmiðið hefur verið að fara í eina ferð á ári og höfum við farið í siglingu á  Jökulsárlónið, í Þórbergssetur, á Djúpavog, í sumarbústað og margt fleira. Einng höldum við t.d. Þorrablót, góuhóf, bingó og notum peninginn til að greiða þetta niður.

-  Maren Sveinbjörnsdóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica