Verkefnið Sjávarfallavirkjun í Hornafirði hlýtur styrk
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar úthlutaði í gær styrkjum til rannsóknaverkefna á sviði umhverfis- og orkumála. Meðal þeirra sem hlutu styrk var verkefni Sveitarfélagsins Hornafjarðar "Sjávarfallavirkjun í Hornafirði" sem fjallar um mögulega nýtingu sjávarfallastrauma til raforkuframleiðslu í Hornafirði. Með verkefninu vill sveitafélagið skoða orkuöflunarmöguleika á svæðinu til framtíðar og vonast það til að hafa í höndunum upplýsingar um hvort og hvar sé mögulegt að virkja sjávarföll þegar þróun vélbúnaðar er komin á það stig að slíkt gæti orðið hagkvæmt við þær aðstæður sem eru hér í Hornafirði.
Verkefnið skiptist í tvo áfanga. Í fyrri áfanga setur Verkís í samstarfi við Háskólann í Reykjavík upp líkan af sjávarföllum í Hornafirði. Stefnt er að ljúka áfanganum á þessu ári. Seinni áfanginn er að skoðaðir verða virkjanakostir í Hornafirði, m.t.t. vélbúnaðar, orkugetu, strauma og áhrifa virkjunar á straumafar og þar með siglingaleiðir innan Hornafjarðaróss. Áfanginn er unnin í samstarfi Sveitarfélagsins Hornafjarðar við Verkís, Háskólann í Reykjavík, Siglingastofnun Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Vinna við 2. áfanga hefst haustið 2010 og lýkur á vormánuðum 2011.
Verkefnisstjóri er Ólöf Rós Káradóttir verkfræðingur á Vatnsorku- og orkuflutningssviði ráðgjafafyrirtækisins Verkíss.





Skrifa athugasemd