Febrúar
Fláajökull
Fláajökull

16.02.2010 Febrúar

Námskeið í fjallamennsku

Nú er nýafstaðið námskeið í fjallamennsku og tók það tvær helgar. Námskeiðið var á vegum hins nýstofnaða Fjallafélags, björgunarsveitarinnar og FAS. Vel tókst til í alla staði og eru námskeiðshaldarar ánægðir með útkomuna. Námskeiðin eru partur af námskrá Landsbjargar og voru leiðbeinendurnir þaðan. 
Þátttakendur voru 13 og voru það einstaklingar úr björgunarsveitinni, Fjallafélaginu og nokkrir nemendur úr FAS. Fyrri helgina var hluti námskeiðsins kenndur í skólanum en laugardeginum var eytt á Fláajökli. Þar var farið yfir göngutækni á broddum og grunnatriði í ísklifri. Á sunnudeginum var svo farið yfir ýmsa verklega þætti.  Seinni helgina var aðaláherslan lögð á ísklifur. Á föstudagskvöldinu var byrjað á upprifjun en á laugardeginum og sunnudeginum voru ísfossar klifraðir.
Fyrirhugað er að halda annað námskeið í fjallamennsku þar sem áhersla verður á rötun, notkun á áttavitum og GPS. Námskeiðið verður auglýst bráðlega en þeir sem hafa áhuga geta haft samband við Bryndísi á skrifstofu skólans. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica