Febrúar
Ístölt á Óslandstjörninni
Ístölt á Óslandstjörninni
Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir á Dimmu Frá Miðskeri
Mynd 1 af 2
1 2

25.02.2010 Febrúar

Ístölt á Óslandstjörninni

Fyrstu vetrarleikar Hornfirðings, þetta árið voru haldnir á Óslandstjörninni síðasta sunnudag. Vetrarleikarnir eru mótaröð þriggja móta, þar sem að knapar og hestar safna stigum. Stigahæsti knapinn og hesturinn verða svo verðlaunaðir á lokamótinu.  
Ísinn á tjörninni var renni sléttur svo auðvelt var að taka hestana til kostanna. Veðrið var uppá sitt besta í byrjun, hægur norðan vindur, en hvessti þegar leið á mótið. Þátttaka var góð og komu bændur af vestan af Mýrum til að taka þátt.
 
Keppt var í fjórum flokkum, unglingaflokki, tölt opnum  flokki, A flokkur  (skeiðhestar) og B flokki
 
Úrslit urðu þessi
Tölt unglingaflokkur.
 
1. Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir  á  Dimmu frá Miðskeri
2. Heiðdís Anna Marteinsdóttir  á Glaumi frá Ártúni
 
Tölt  opinn flokkur
 
1. Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir  á Hring frá Skjólbrekku
2. Pálmi Guðmundsson  á Perlu frá Horni
3. Magnús Skúlason  á Ör frá Haga.
 
A flokkur
 
1. Pálmi Guðmundsson á Gruni frá Hafsteinsstöðum
2. Friðrik H Reynisson á Bráni frá Hlíðarbergi
3.Hanni Heiler  á Safír frá Nautabúi
 
B flokkur
 
1. Pálmi Guðmundsson á  Hring frá Skjólbrekku
2. Magnús Skúlason á Ör frá Haga
3.Lena Hrönn Marteinsdóttir á Bjarma frá Ártúni

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica