Mars
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

16.03.2010 Mars

Nýr frumkvöðull í Frumunni á Höfn

Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir hjá Gastu – íslensk hönnun hefur fengið aðstöðu hjá frumkvöðlasetrinu Frumunni á Höfn. Fruman er  eitt af sex frumkvöðlasetrum sem  er á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð.  Guðrún Ásdís er Hornfirðingum kunnug en hún ólst upp á Fiskhólnum.  Guðrún er með BS gráðu í byggingatæknifræði . Hún hefur saumað úr leðri  undanfarin  ár og rak verslunina Leður og List í Reykjavík ásamt eiginmanni sínum.  Gastu opnaði vefverslun nýlega sem hefur fengið mjög góðar viðtökur. Skartgripir úr fiskroði hafi vakið mikla athygli undanfarna mánuði en á næstunni kemur  töskulína ásamt fleiri nýjungum.  Helstu áherslur Gastu núna er þróun, hönnun og markaðssetning á vörulínunni. Hægt er að skoða vefverslun Gastu á slóðinni  www.gastu.com .

Að auki eru tveir frumkvöðlar með aðsetur hjá Frumunni ferðaþjónustuklasinn Ríki Vatnajökuls og   hönnunarfyrirtækið Dimms Design.  Nú um mánaðarmótin losnar aðstaða fyrir einn frumkvöðul í sameiginlegu skrifstofurými. Þeir sem hafa áhuga á því geta haft samband við Ara eða Björk hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu www.nmi.is.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica