Mars
Dregið í lukkuleiknum
Dregið í lukkuleiknum
Mynd 4 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

20.03.2010 Mars

Ferðafélagið 30 ára

 

Mikil gleði ríkti í Nýheimum sunnudaginn 14. mars þegar ferðafélagið fagnaði 30 ára afmæli. Margt var um mannin, en 115 manns mættu í afmælið,  og félaginu bárust veglegar gjafir frá Ferðafélagi Íslands. Dregnir voru út 13 vinningar í  strandgönguleiknum og starfsemi sumarsins kynnt.  Ferðafélagið er líflegur og fjölskylduvænn félagsskapur og þar er ekkert kynslóðabil og er góð þátttaka í ferðunum. Alls um 220 manns hafa mætt í Strandgöngurnar í vetur í misjöfnum veðurskilyrðum.

Helgina 23-25. júlí stendur félagið fyrir afmælisgleði í Kollumúla þar sem boðið verður upp á fjölbreyttar gönguferðir við allra hæfi og ýmislegt skemmtilegt gert. Í tilefni af afmælisárinu verður einnig farið í skipulagða hópferð til Noregs í ágúst með 30 manna hóp. Fullbókað er í þá ferð.

Ferðafélagið var stofnað 9. mars 1980. Stofnfélagar voru 49 einstaklingar á öllum aldri úr Lóni, Nesjum, Mýrum og Höfn. Nú eru félagsmenn rúmlega 90.

Tilgangurinn með stofnun félagsins var eins og segir í lögum félagsins:“að stuðla að ferðalögum á Íslandi og greiða fyrir þeim.”

Í þessum anda hefur félagið starfað og áherslurnar eru í fullu gildi enn þann dag í dag og hefur félagið frá fyrstu tíð skipulagt fjölbreyttar ferðir fyrir félagsmenn og aðra.

Ferðafélagið á og rekur Múlaskáli á Lónsöræfum. Skálinn var reistur árið 1984 í samvinnu við bændur í Lóni og landeigendur á  Stafafelli og Brekku.Þar er svefnpláss fyrir um 30 manns og öll aðstaða til fyrirmyndar. Mikið er bókað í sumar og Íslendingar  greinilega að streyma til fjalla. Við auglýsum því hér með eftir áhugasömum einstaklingum sem gætu hugsað sér að starfa þar við skálavörslu í sumar.

Starfsemin er í miklum blóma og framundan er ferðadagskrá sumarsins með fullt af fjölbreyttum og skemmtilegum ferðum.

Allir eru velkomnir með.

Hægt er að finna upplýsingar um félagið á heimasíðu okkar gonguferdir.is/

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica