Mars
Fyrstu lömb ársins í Suðursveitinni fæddust á sunnudag
Fyrstu lömb ársins í Suðursveitinni fæddust sunnudaginn 21. mars á Kálfafelli. Þetta eru 3 gimbrar og eru þær því allar lambadrottningar vorsins 2010 á Kálfafelli. En lambadrottning og lambakóngur er titillinn á fyrstu lömbunum sem fæðast á hverju ári. Gimbrarnar eru eldsprækar og lífga þær upp á lífið og tilveruna í fjárhúsinu.
Þess má geta að fyrstu lömbin fæddust í Suðursveit á sama tíma á síðasta ári. Sauðburður byrjar almennt í sveitinni um 20. apríl.




Skrifa athugasemd