Apríl
Fékk far til að taka myndir af eldgosinu og norðurljósum
Í síðustu viku ákvað Gísli Már Vilhjálmsson á Hótel Höfn að skella sér með Björgunarfélagi Hornafjarðar á gosslóðir við Fimmvörðuháls.
Markmið ferðarinnar fyrir utan að skoða eldgosið var að athuga hvort hann myndi ná ljósmynd af norðurljósum og eldgosinu á sömu mynd. Þetta gekk upp og er meðfylgjandi mynd afrakstur þess. Gísli Már sagði að gosið hefði verið ótrúleg sjón og væri hann sérstaklega ánægður með að hafa náð mynd af gosinu með norðurljósin í bakgrunn, enda leggur Hótel Höfn nú áherslu á norðurljósaferðir fyrir ferðamenn hér í sveitarfélaginu.





Skrifa athugasemd