Ráðstefna Kvískerjasjóðs
Laugardaginn 17. apríl verður haldin ráðstefna um Kvískerjasjóð á Smyrlabjörgum. Á ráðstefnunni verða fjölmargir fyrirlestrar þar sem verkefni sem sjóðurinn hefur styrkt verða kynnt. Sjóðurinn var stofnaður árið 2003 og hefur veitt 34 styrki til margvíslegra verkefna, sögulegra og náttúrufarslegra rannsókna.
Stjórn sjóðsins og sveitarfélaginu þykir ástæða til að kynna afrakstur verkefna fyrir heimamönnum og eru þeir hvattir til að koma og kynnast starfi sjóðsins og þeim fjölmörgu verkefnum sem unnin hafa verið með aðkomu hans
Farin verður ferð frá BSÍ föstudaginn 16. apríl klukkan 18:00 og aftur til baka að ráðstefnu lokinni og er ráðstefnugestum að kostnaðarlausu.
Þeir sem vilja nýta sér ferðina skrá sig á netfangið bjorgerl@hornafjordur.is fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 15. apríl.
Bent er á slóðina www.visitvatnajokull.is þar sem finna má upplýsingar um gistingu á svæðinu.
Allir velkomnir
Stjórn Kvískerjasjóðs og Sveitarfélagið Hornafjörður
Dagskrá:
10.00 Setning Hjalti Þór Vignisson
10.15 Tengsl loftslags og jökulbreytinga í SA Vatnajökli - Hrafnhildur Hannesdóttir
10:45 Fjallaplöntur, jökulsker og loftslag – Bjarni Diðrik Sigurðsson og fleiri
11:15 Landnám smádýra á jökulskerjum – María Ingimarsdóttir
11:45 Staðbundin óveður á Kvískerjum – Hálfdán Ágústsson
12.15 – Matarhlé
13:30 Boranir í Skaftárkatla og rannsóknir á jökulhlaupum 2006-2008 – Þorsteinn Þorsteinsson
14:00 Eldgos í Öræfajökli 1362 – Ármann Höskuldsson
14.30 Landslag undir jöklum í Öræfum – Helgi Björnsson
15:00 Hörfun jökla og gróðurframvinda - Þóra Ellen Þórhalldsdóttir o.fl.
15:30 Kaffi og veggspjaldasýning
Búsvæðaval og afkoma óðinshana og þórshana í Öræfum,
Yann Kolbeinsson
Jökla-, vatna-, jarðefna og örverufræðileg rannsókn á Skaftárkötlum,
Þorsteinn Þorsteinsson og Tómas Jóhannesson
Munnleg hefð
Björg Erlingsdóttir
16:15 Pallborðsumræður um sjóðinn og framtíð hans
17:00 Ráðstefnuslit





Skrifa athugasemd