Apríl
Hreindýr
Hreindýr
Hreindýr á ferðinni á Höfn
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

15.04.2010 Apríl

Hvergi jafn auðvelt að komast í nálægð við hreindýrin og hér

Fyrir páskana var haldið Hreindýramálþing í Nýheimum þar sem mættir voru fulltrúar af austurlandi ásamt heimamönnum í Hornafirði.
Þarna var góð mæting og samvinna við Austfirðingana góð. Það er mikilvægt að svæðin á Suðaustur og Austurlandi vinnum að sameiginlegum hagsmunum þó að við tilheyrum nú formlega Suðurlandi segir Rósa Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Í ríki Vatnajökuls, þessi samvinna skiptir okkur öll miklu máli því að hreindýrin eru sameiginleg auðlind okkar á þessum svæðum. Hvergi er eins auðvelt að komast í nálægð við hreindýrin yfir veturinn og fram á vor eins og hér þar sem þau eru í byggð í Lóni, Nesjum, á Mýrum og hér innan bæjarmarkanna.
Tilgangur með þessu málþingi var að greina þau tækifæri sem felast í þessari sjálfbæru auðlind svo sem nýtingu á hreindýraafurðum s.s. kjöti, skinnum og hornum en þau nýtast handverksfólki til  framleiðslu á fjölbreyttri gjafavöru og minjagripum. 

Einnig kom fram að það eru mikil tækifæri í skoðunarferðum á hreindýraslóðir með ferðamenn, auk þess sem rætt var um hvernig nágrannaþjóðir okkar gera út á lifandi hreindýr með ferðum á vögnum með léttivagna ofl. Þarna eru mörg ónýtt tækifæri sem gætu skipt miklu máli fyrir ferðaþjónustuna.


Að málþingi loknu var kvöldverður á Hótel Höfn þar sem boðið var uppá humarrétt, hreindýrakjötbollur og eftirrétturinn var  rjómaís frá Árbæ og  Rósa vill taka fram að þetta hafi verið hreint frábærlega góður matur hjá Halldóri Halldórssyni kokki.
Þarna frumflutti skotinn Carles Ross tónlistarkennari  tónlistaratriði, hálfgerðan gjörning, í tilefni hreindýramálþingsins. Þetta var stórkostlega flott bæði  tónlistarflutningurinn, hljóðfærin og búningurinn hjá Charles segir Rósa.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica