Apríl
Sinubruni í Óslandi 31.3.2006
Sinubruni í Óslandi (úr myndasafni)6
Úr myndasafni: Sinubruni í Óslandi 2006 séð frá Höfðavegi (@Ragga/Gauti)

20.04.2010 Apríl

Með hrífur og klöppur gegn eldinum

Slökkvilið Hornafjarðar var kallað út um kl.13 á sunnudag að sumarbústað í landi Setberg þar sem eldur hafði borist í gróður við sumarbústaðinn.
Upptök eldsins voru þau að sumarbústaðareigandinn var að brenna rusli nálægt bústaðnum og fuku neistar í hvassri vestanátt í þurra sinu og mosa og varð af mikill eldur sem hætta var á að bærist í bústaðinn.
Vel gekk að verja bústaðinn en eldurinn barst fljótt um sinu í nágrenninu. Á sunnudagskvöld töldu slökkviliðsmenn að tekist hefði að slökkva alla glóð en höfðu þó vakt um nóttina. Á mánudagsmorgun snérist vindurinn upp í hvassa norðanátt og þá blossaði eldur upp aftur því þarna er mikill mosi i klettum og gjótum þar sem glóð getur leynist lengi við þessar aðstæður.

Steinþór Hafsteinsson slökkvistjóri segir að þetta hafi verið handavinna og það eina sem dugði til slökkvistarfsins hafi verið hrífur og sinuklöppur þarna hafi engin tæki komist að. Slökkvistarfi  lauk um kl. 20 í gærkvöldi (mánudagskvöld)  en vakt var til kl.22. Talið er að brunna svæðið sé hátt í 100 hektara og talsvert af trjágróðri hafi eyðilagst.

Steinþór vill eindregið beina þeim tilmælum til  fólks að vera gætið með eld ekki síður utan húss þegar allt er svona skráþurrt og  í hvössum vindi er eldurinn fljótur að breiðast út ,,fer eins og eldur í sinu´´.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica