Apríl
Sauðburður
Sauðburður
Sauðburður @Þórey/Ingunn
Mynd 3 af 5
1 2 3 4 5

20.04.2010 Apríl

Sauðburður

Þá er vorið komið og sauðburður víða hafin. Sauðburður er sá tími ársins þegar ærnar eignast lömbin sín og stendur hann yfir frá síðustu viku í apríl til loka maí.

Yfirleitt stendur háannatíminn í sauðburðinum yfir í 3-4 vikur og er þá unnið á vöktum allan sólahringinn. Þó svo að bændur séu þreyttir þá er vorið að margra mati skemmtilegasti tími ársins þegar lömbin fæðast, fuglar eru í  hreiðurgerð og gróður að lifna eftir veturinn.

Þegar ærin er að fæða lambið eða lömbin sín kallast það að hún sé að bera, samanber sauðburður. Ærnar ganga með í að meðaltali 143 daga og er þá æxlunartími þeirra í desember. Æxlunartíminn kallast fengitími, þá eru ærnar að fá fang hjá hrútunum. Þær eiga yfirleitt tvö lömb, sumar eiga eitt og aðrar þrjú eða fjögur. Þær ær sem eiga eitt lamb fá í flestum tilfellum eitt lamb frá á sem á fleiri en tvö lömb, þannig jafnast út álagið á ærnar við uppeldið. Mikilvægt er fyrir lömbin að fá broddmjólk sem fyrst eftir burð, en það er mjólkin sem ærin framleiðir á síðustu dögum meðgöngu og er full af lífsnauðsynlegum næringarefnum og mótefnum gegn sjúkdómum. Broddmjólkin þynnist svo út eftir að líður frá burði og venjuleg mjólkurframleiðsla hefst hjá ánni. Ærin sleikir nýfæddu lömbin til að þurrka þau og kallast það ærin sé að kara lömbin. Þegar ærin karar lömbin þá ýfist ullin upp á þeim og það örvar líka blóðrásina, þetta varnar því að lömbunum verði kalt á meðan þau eru ekki ennþá búin að fá broddinn sinn.    

Eftir að ærin er borin þá eru hún og lömbin sett í einstaklingsstíu þar sem þau eru í 2 daga eða svo á meðan lömbin eru að átta sig á umhverfinu og að þekkja móður sína. Ærin og lömbin þekkja hvort annað á lyktinni og ærnar ýta lömbum annarra áa frá sér. Þegar lömbin eldast fara þau og móðir þeirra í sambýli við fleiri lambær og oft eru 2-4 ær saman með lömbin sín í stíu í nokkra daga. Bændur reyna þó að setja lambærnar út eins fljótt og mögulegt er eftir burðinn eða þegar lömbin eru svona 4-5 daga gömul. Það er mjög mikilvægt fyrir lömbin og ærnar að komast sem fyrst út á grængresið vegna þess að grasið er mjög ríkt af næringarefnum sem nýtast ánni vel til mjólkurmyndunar og lömbunum til vaxtar. Á meðan grasið er að ná sér vel á strik þá er ánum gefið hey og stundum kjarnfóður með beitinni. Lömbin byrja að bíta gras af einhverju ráði um tveggja vikna aldur. Ef það þarf að hafa lambfé lengi inni sökum veðurs veldur það miklu álagi á ærnar þar sem að lömbin hafa lítið annað en mjólkina til að nærast á. Það hjálpar strax að setja lambféð út í hólf með aðgangi að heyi og kjarnfóðri og einhverju húsi eða skýli fyrir vondum veðrum. Lömbin hafa miklu meira um að vera úti heldur en inni, þau eru að kanna svæðið og kroppa í lítil strá sem spretta kannski upp í hólfinu.

Í lok maí og byrjun júní er flest lambfé komið út í úthagann.  

- Þórey Bjarna

 

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica