Maí
Taskan afhent
Taskan afhent
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

07.05.2010 Maí

Færðu lögreglunni sjúkratösku

 

Lögreglunni á Höfn barst í gær gjöf frá Lionsklúbbi Hornafjarðar en það er vönduð sjúkrataska  sem kemur lögreglunni að góðum notum í útköll vegna slysa. Sigurður Guðmundsson afhenti gjöfina fyrir hönd Lionsklúbbsins og bað lögregluna vel að njóta. Jón Garðar Bjarnason þakkaði þessa veglegu gjöf og hlýhug Lionsmanna og sagði töskuna koma sér mjög vel. Nú getum við farið að raða í töskuna og það verður mikill munur að hafa allt á sama stað og tilbúið s.s. sáraumbúðir og tilheyrandi ásamt hjartastuðtæki, sem við fengum einmitt frá Lionsklúbbnum, 

Við erum alltaf tilbúnir að leggja Lögreglu og björgunaraðilum lið sagði Sigurður, það er bara að lauma að okkur hvað helst vantar, okkur er það sönn ánægja að styrkja þessi félög því hvar værum við ef við ættum ekki þessar frábæru hjálparsveitir sem alltaf eru til taks.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica