Maí
Þrekmeistari 2010
Þrekmeistari 2010
Klærnar með Veigu ömmu...
Mynd 2 af 3
1 2 3

10.05.2010 Maí

Sólrún í annað sæti á þrekmeistaranum.

Um helgina var þrekmeistarakeppni haldin á Akureyri og fór eitt lið héðan "KLÆRNAR" að keppa í liðakeppninni og ein í einstaklingskeppnina, Sólrún Sigurjónsdóttir, sem lenti í öðrusæti. 

Kristjana Hildur Gunnarsdóttir sigraði í einstaklingsflokki kvenna með því að bæta eigið Íslandsmet um 10 sekúndur þegar hún fór á tímanum 15:37:21. Kristjana keppti í fyrsta skipti í flokki 39 ára og eldri og yfirtók því Íslandsmet Hönnu M. Harðardóttur sem hafði staðið óhaggað í þrjú ár. Önnur á eftir Kristjönu varð Sólrún Sigurjónsdóttir sem fór á tímanum 17:21:62 og þriðja varð Þuríður Ásdís Þorkelsdóttir á tímanum 19:08:92. Þær þrjár áttu bestu tímana í flokki 39 ára og eldri en það skondna er að þær áttu sömuleiðis allar þrjár bestu tímana í opna flokknum. Þær stöllur skákuðu þannig yngri kynslóðinni. Í verðlaunaafhendingunni þurftu þær því ekki að stíga af pallinum til þess að taka líka við verðlaunum í opna flokknum.

5 fræknar frá Lífsstíl í Keflavík sigruðu í liðakeppni kvenna á tímanum 13:39:71 en skammt á eftir þeim kom liðið Boot Camp Akureyri frá Átaki á tímanum 14:08:90. Liðið Scitec 1 frá Þrekhöllinni á Akureyri varð í þriðja sæti á tímanum 14:48:40. Klærnar frá Sporthöllinni urðu í 5. sæti á tímanum 15:37.

( tekið af síðunni http://www.fitness.is )

Við óskum þeim tilhamingju..

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica